Ljósmyndasafn Íslands er með reglubundnar myndasýningar í safnahúsi Þjóðminjasafns Íslands að Suðurgötu 41 í Reykjavík bæði í Myndasal á jarðhæð og á Vegg framan við salinn.
Ljósmyndasafn Íslands er með aðsetur í Vesturvör 16-20 í Kópavogi. Hægt er að senda fyrirspurnir um myndir og annað sem varðar myndasafnið á eftirtalin netföng:
Velkominn á vef Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafni
Ljósmyndasafn Íslands veitir almenningi, sérfræðingum, útgefendum, kvikmyndagerðarmönnum og öðrum aðgang að myndasöfnum í sinni vörslu og selur og leigir eftirtökur af myndum sem varðveittar eru í safninu.
Safnið er skráð í gagna- og upplýsingakerfið Sarp, sem enn er ekki veflægt, en unnið er að nýrri útgáfu þess. Til að gera hluta mynda Ljósmyndasafns Íslands aðgengilegan á netinu hafa myndasöfn að hluta eða heild verið skönnuð inn svo unnt sé að skoða myndir þó fyrirliggjandi skráning fylgi þeim ekki. Um 20.500 myndir eru til skoðunar á þessari vefsíðu.


